Löginnheimta
Ef milliinnheimta ber ekki árangur býðst kröfuhöfum fagleg ráðgjöf um næstu skref.
Löginnheimta er í eðli sínu íþyngjandi fyrir greiðendur, enda öllum tiltækum úrræðum íslenska réttarkerfisins beitt. Því leggjum við áherslu á faglega ráðgjöf og gott upplýsingaflæði til kröfuhafa um næstu skref.
Aðgerðir í löginnheimtu
Aðgerðir geta meðal annars verið greiðsluáskorun, stefnubirting og dómsmeðferð. Ferlið endar oftast með eingreiðslu skuldar eða samningi um greiðslu hennar. Náist ekki samningar getur ferlið endað með fjárnámi, nauðungarsölu og gjaldþroti.
Ráðgjöf og upplýsingaflæði
Löginnheimta er í eðli sínu íþyngjandi fyrir greiðendur, enda er öllum tiltækum úrræðum íslenska réttarkerfisins beitt. Þess vegna leggjum við áherslu á faglega ráðgjöf og gott upplýsingaflæði til kröfuhafa um næstu skref á hverju stigi máls.
Algengar spurningar
Hvenær fer mál í löginnheimtu?
Þegar milliinnheimta hefur ekki borið árangur og kröfuhafi ákveður, að fenginni ráðgjöf, að halda málinu áfram.
Hver annast löginnheimtuna?
Löginnheimta er í höndum Gjaldskila Lög ehf.
Er hægt að semja eftir að mál er komið í löginnheimtu?
Já, ferlið endar oftast með eingreiðslu eða samningi um greiðslu skuldarinnar.
Hafðu samband
Við förum yfir þau úrræði sem standa til boða og finnum lausn sem hentar.